Jólaleyfi bæjarstjórnar

Á síðasta fundi bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs var samþykkt að jólaleyfi bæjarstjórnar verði að þessu sinni frá og með 8. desember 2016 og til og með 4. janúar 2017.

Jafnframt var samþykkt að bæjarráð fari með fullnaðarafgreiðsluumboð mála á þeim tíma, sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, meðan bæjarstjórn er í jólaleyfi.

Bæjarráð verður kallað saman til funda á þessu tímabili ef þurfa þykir, en fastir fundir þess meðan jólaleyfi bæjarstjórnar varir, verða 12. og 19. des.