Jólakortaútgáfa Héraðsskjalasafnsins á vefinn

Ný myndasýning hefur verið sett inn á vef Héraðsskjalasafns Austfirðinga í tilefni komandi jólahátíðar. Að þessu sinni var valið að sýna jólakortaútgáfu safnsins sem hefur verið nær samfelld frá árinu 1979. Að venju var umsjón með sýningunni og gerð myndatexta í höndum Arndísar Þorvaldsdóttur.

Lokað verður í Safnahúsinu milli jóla og nýjárs, nema Bókasafn Héraðsbúa verður opið á hefðbundum tíma, frá klukkan 14 til 19, dagana 27. og 28. desember.