Jól og áramót – opnunartími og viðburðir

Bæjarskrifstofur Fljótsdalshéraðs verða lokaðar 22. desember, vegna orlofstöku starfsmanna. Aðra virka daga um hátíðarnar verða skrifstofurnar opnar með hefðbundnum hætti. Margir starfsmenn nýta sér þó þennan tíma til að taka ónýtta orlofsdaga, svo að búast má við skertri þjónustu af þeim sökum.

Hið árlega jólaball sem haldið er á vegum Lionsklúbbsins Múla og Fljótsdalshéraðs verður í íþróttahúsinu í Fellabæ miðvikudaginn 27. desember frá klukkan 17 til 19.

 Áramótabrennan sem haldin er í samstarfi Björgunarsveitarinnar og Fljótsdalshéraðs verður á Egilsstaðanesi 31. desember. Kveikt verður í brennunni klukkan 16:30 og flugeldasýningin hefst klukkan 17:00. Áramótatónlist flutt við brennuna.

 Þrettándagleði og álfabrenna sem haldin er í samstarfi Hattar og Fljótsdalshéraðs verður í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum 6. janúar. Skrúðganga og blysför verður frá íþróttamiðstöðinni klukkan  17:15, en kveikt verður í bálkesti um klukkan 17:30. Þá verður afreksíþróttafólk Hattar heiðrað ásamt því að veitt verða starfsmerki Hattar. Dagskráin endar með flugeldasýningu. Björgunarsveitin á Héraði verður með sölu á kyndlum við íþróttamiðstöðina fyrir gönguna á 1.000 krónur stykkið.