JEA, Jazzhátíð Egilsstaða á Austurlandi hefst í kvöld. Frumflutt verður dans- og tónverkið Draumar eftir Einar Braga Bragason og Irmu Gunnarsdóttir í Fljótsdalsstöð. Þau njóta aðstoð landskunnra tónlistarmanna og dansara.
Nokkrir af liðsmönnum Mezzoforter munu meðal annarra spila í verkinu.
Jón Hilmar Kárason er framkvæmdastjóri JEA í ár. Hann segir spenninginn mikinn og annríki hafi verið við undirbúning síðustu daga. “Ég er að farast úr spenningi. Það eru komnir til okkar frábærir tónlistarmenn, og ég er varla enn búinn að fatta það að Larry Carlton er að fara spila á tónleikum hjá okkur á fimmtudagskvöld.”
“Nú stendur yfir undibúningur vegna opnunarhátíðarinnar í Fljótsdalsstöð. Irma og dansararnir komu í morgun til æfinga.” segir Jón Hilmar sem bindur miklar vonir við Fljótsdalsstöð. “Ég held að þarna sé ferðinni einstæður viðburður.” segir Jón.
Í kjölfar opnunarhátíðarinnar spilar Larry Cartlon í Valaskjálf á fimmtudagskvöld. Bláir Skuggar á Blúsbarnum í Neskaupstað á föstudagskvöld og Beady Belle ásamt Bloodgroup í Herðubreið á laugardagskvöld.
Nánari upplýsingar um dagskrá og miðapantanir má nálgast á heimasíðu JEA á slóðinni www.jea.is
23. júní árið 1988 var fyrsta Jazzhátiðin haldin á Egilsstöðum. Hátíðin fagnar því 20 ára afmæli í dag. Segja má að JEA sé einhver rótgrónasta tónlistarhátíð landsins. Það var Jón Múli Árnason sem veitti hátíðinni brautargengi á sínum tíma, en driffjöður hennar var Jazzgeggjarinn sjálfur Árni Ísleifsson. Árni er að sjálfsögðu meðal gesta hátíðarinnar í ár.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.