Jasshátíð Egilsstaða á Austurlandi sett í dag

Jazzhátíð Egilsstaða á Austurlandi verður sett í dag, miðvikudaginn 24. júní, í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum.

Við setningarathöfnina munu ungir söngvarar þenja raddböndin og flytja nokkur tónlistaratriði. Dagskráin í Tjarnargarðinum hefst kl. 15.00.


Jasshátíðin er haldin dagana 24. -28. júní og fer nú fram á fjórum stöðum á Austurlandi.

Eins og síðastliðin ár verður hátíðin á Egilsstöðum, í Neskaupstað á Seyðisfirði og nú einnig á Eskifirði.  Dagsskráin í ár verður skemmtileg og eins og venjulega fjölbreitt. Að þessu sinni koma góðir vinir í  heimsókn frá Sortland í Vesteralen, í Noregi, en mikið og  ánægjulegt samstarf hefur verið um menningarmál milli aðila á Austurlandi og Vesteralen undan farin ár. Það er hljómsveitin Mighty Marith and the Mean Men sem kemur frá Sortland að þessu sinni. Frábær hljómsveit sem mun leika víðar um landið. Hér má heyra upptöku frá Mighty Marith and the Mean Men á Youtube http://www.youtube.com/watch?v=l5Fot6dxLHY
 
Tómas R. Einarsson kemur með Trúnó bandið sitt og leikur lög af Trúnó plötunni sem kom út fyrir skemmstu.  BT Power trio mun verða í rokk gírnum þó svo að stutt sé yfirleitt í jazzinn hjá Bjössa Thor.  Einnig verður tónlistarhátíð inni í tónlistarhátíðinni, en það er Bjartsýnisblúsinn, þar sem Blúskóngarnir Garðar Harðar og Guðgeir leika blústónlist eins og þeim einum er lagið. Þeir fá til sín góða gesti eins og Þorleif Guðjónsson og Björgvin Gíslason. Frá Noregi kemur svo danski bassaleikarinn Andreas Dreier en hann lauk nýverið við plötuna „Stew“ með Andrési Þór gítarleikara og munu þeir meðal annars leika tónlist af þeirri plötu. Hægt er að heyra tónlist af þessari plötur Andreas Dreier á Myspace eða hér http://www.myspace.com/andreasdreier

Jasshátíð Egilsstaða á Austurlandi hefur farið vaxandi og hafa meðal annrarra Larry Carlton, James Carter, Beady Belle, Greg Matheison og Laurie Wheeler leikið á hátíðinni síðust árin.   

Dagskrá Jazzhátíðar Egilsstaða á Austurlandi að þessu sinni er eftirfarandi: (sjá má plakat hátíðarinnar hér)

Miðvikudagur 24. júní – Setning í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum kl. 15.00
- Ungir söngvarar þenja raddböndin
- Hátíðin sett formlega
- Tónlistaratriði
Bláa Kirkja Seyðisfirði kl. 21.00
- Björt og Bensín bandið
- Mighty Marith and the Mean Men ásamt Einari Braga

Fimmtudagur 25. júní – Egilsstaðir, Valaskjálf kl. 21.00
- Blúsband Guðgeirs
- Garðar Harðar og gestir
- Þorleifur Guðjóns
- Björgvin Gísla ofl.

Föstudagur 26. júní – Egilsstaðir, Valaskjálf kl. 21.00
- JHK Band
- Tómas R. og Trúnóbandið

Laugardagur 27. júní – Neskaupstaður, Egilsbúð kl. 21.00
- Mighty Marith and the Mean Men
- BT Power trio

Sunnudagur 28. júní – Eskifjörður, Kirkju- og menningarmiðstöðin kl. 16.00
- Andreas Dreier Quartet