Í framhaldi af setningu laga um jafnlaunavottun sem samþykkt voru á Alþingi 1. júní 2017 og öðluðust gildi 1. janúar 2018, er hafin vinna við undirbúning jafnlaunavottunar fyrir Fljótsdalshérað. Samið var við fyrirtækið PWC. að stýra því ferli og er sú vinna nú í gangi. Fljótsdalshérað er með fleiri en 250 starfsmenn á launaskrá og þarf því samkvæmt umræddum lögum að ljúka ferlinu fyrir lok ársins 2018.
Að loknu undirbúningsferli þarf síðan að sækja um sérstaka vottun og eru það í dag einungis tveir aðilar sem hafa réttindi til að veita jafnlaunavottun.
Fljótsdalshérað vill nota tækifærið til að hvetja öll fyrirtæki sveitarfélagsins til að vinna að þessum málum í samræmi við gildandi lög og ljúka ferlinu innan þeirra tímamarka sem þar er mælt fyrir um. Frekari upplýsingar er að finna hér á vef Alþingis.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.