Íþróttir: Ferðastyrkur til Runavíkur í boði

Auglýstur er til umsóknar styrkur sem ætlaður er til að aðstoða íþróttafélög á Fljótsdalshéraði til að ferðast til Runavíkur í Færeyjum. Styrkurinn skal notaður til samstarfs á milli íþróttafélaga í báðum sveitarfélögum, s.s. til þátttöku í keppnisleikum eða til æfinga á árinu 2013. Þetta samstarf skal miðast við börn og ungmenni.

Upphæð ferðastyrks getur numið allt að kr. 150.000. Jafnframt tryggir sveitarfélagið Runavík styrkhafa gistingu í skóla eða við svipaðar aðstæður, meðan á dvöl stendur í Færeyjum.

Umsækjendur geta verið íþróttafélög á Fljótsdalshéraði.

Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um umsækjanda, tímasetning og lýsing á tilgangi ferðar til Runavíkur auk þess sem gerð verði grein fyrir kostnaði og fjármögnun ferðarinnar.

Umsóknarfrestur er til 22. febrúar 2013 og skal umsókn skilað á skrifstofu sveitarfélagsins að Lyngási 12, Egilsstöðum, eða á netfangið odinn@egilsstadir.is

Íþróttastarf í Runavík er öflugt, en þar er helst lögð áhersla á fimleika, fótbolta, handbolta, bogfimi, íþróttir fatlaðs fólks og róður ofl. Fleiri greinar eru stundaðar í nágranna sveitarfélögum. Aðstæður eru þar einnig ágætar til íþróttaiðkunar.
Sviðsstjóri íþróttamála í Runavík er Sölvi R. Hansen Solvi@runavik.fo. Hægt er að hafa samband við hann til að fá nánari upplýsingar og ráðleggingar s.s. um samstarfsaðila.
Heimasíða Runavíkur er http://runavik.fo/  og hér má fara beint á vefsíðu þar sem fjallað er um íþróttamál.
 
Fljótsdalshérað og Runavík hafa átt vinabæjarsamstarf síðan árið 1991. Í október síðstliðnum undirrituðu Stefán Bogi Sveinsson, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, og Magnus Rasmussen nýtt samkomulag um vinabæjarsamstarf.