Ístölt Austurland 2009 verður haldið í hjarta Egilsstaða þann 21. febrúar næstkomandi, nánar tiltekið í Egilsstaðavíkinni við Gistihúsið Egilsstöðum. Eins og áður hafa skráð sig til leiks sumir af sterkustu knöpum landsins með gæðinga sína.
Heimamenn hafa því miður þurft að lúta í lægra haldi fyrir aðkomumönnum undanfarin ár. Konungur austfirskra knapa, Hans Kjerúlf, hefur þó haldið merki heimamanna á lofti og hefur endað í öðru sæti fjögur undanfarin ár í tölti. Í ár virðast Freyfaxamenn fyrirfram vera nokkuð sterkir og fleiri góð hross en oft áður virðast vera á járnum hjá heimamönnum. Þeir munu því reyna að koma í veg fyrir að Ormsbikarinn eftirsótti fari frá fjórðungnum, en þessi víðfrægi farandgripur hefur lítið tollað í héraði frá því hann var smíðaður.
Keppnin haldin síðast í Egilsstaðavík árið 2005 og þótti ákaflega velheppnuð. Vegna skorts á ís hefur keppnin verið haldin á Eiðavatni undanfarin ár, í ekki síðri náttúru. Það er óhætt að segja að slegið verði upp veislu mannlífs, hesta og náttúru í Egilsstaðavíkinni.
Í tengslum við Ístölt Austurland er unnin sjónvarpsþáttur sem
Hestafréttir.is framleiða fyrir Freyfaxa. Það eru fyrirtækin Alcoa, Austar, Fóðurblandan og Hrossabúið Tjarnarland sem hafa gert framleiðslu þáttarins mögulega með stuðningi sínum. Þátturinn verður aðgengilegur öllum, alltaf, á vefsjónvarpi Hestafrétta. Auk þess sjá Hestafréttir um ljósmyndun á mótinu, en margar af betri hestaljósmyndum síðustu ára hafa orðið til á Ístölt Austurland.
Mót sem þetta verður ekki haldið nema með myndarlegum stuðningi fyrirtækja á svæðinu. Eins og undanfarin ár standa fyrirtækin traustum fótum við bakið á mótinu, jafnvel þótt hart sé í ári. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á
www.freyfaxi.net