Íbúðalánasjóður auglýsir til leigu 29 eignir og er umsóknarfrestur í viku eða til og með 3. apríl n.k. og verða þær leigðar út frá 1. maí eða fyrr eftir samkomulagi. Þar af eru tvær íbúðir á Egilsstöðum, við Hamragerði og þrjár á Reyðarfirði.
Í tilkynningu frá Íbúðarlánasjóði segir: Eignirnar eru auglýstar á http://fasteignir.visir.is/ og http://mbl.is/leiga/ og þar er hægt að sækja um þær með því að senda inn umsókn á leiga@ils.is og þar á eingöngu að setja nafn eignar í subject, nafn umsækjanda,kt. og símanúmer í mailið. Eftir 3. apríl er svo unnið úr umsóknum.
Á meðan eignirnar eru auglýstar er ekki hægt að skoða þær nema á þeim myndum sem eru í auglýsingunni á netinu en að sjálfsögðu fær fólk að skoða eignina ef það er dregið út og hafa þá kost á að afþakka eignin ef hún hentar ekki.
Hér má sjá úthlutunarreglur sjóðsins : http://www.ils.is/einstaklingar/ibudir-til-leigu/uthlutunarreglur-leiguibuda/
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.