Íbúafundur á þriðjudag

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs boðar hér með til íbúafundar þriðjudaginn 12. nóvember næstkomandi kl. 17:00 í fyrirlestrarsal Egilsstaðaskóla að Tjarnarlöndum 11. 

Á fundinum verður kynnt fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2014, auk þriggja ára áætlunar áranna 2015 – 2017, eins og bæjarstjórn afgreiddi hana við fyrri umræðu á fundi sínum 6. nóv. sl.
Fjárhagsáætlunin verður síðan afgreidd við síðari umræðu í bæjarstjórn þann 20. nóvember.

Íbúar Fljótsdalshéraðs eru hvattir til að mæta og kynna sér fjárhagsáætlunina.

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs