Höttur og Fjölnir bítast um sæti í úrvalsdeildinni

Úrslitakeppi um laust sæti í úrvalsdeild karla í körfuknattleik fer fram föstudagskvöldið 4. apríl klukkan 18.30 í íþróttahúsinu á Egilsstöðum. Þetta er annar leikur Hattar gegn Fjölni. Fjölnir sigraði Hött 88-62 í fyrsta leiknum sem haldinn var í Grafarvogi í gærkvöld.

Ef Fjölnir vinnur á föstudaginn tryggir liðið sér sæti í úrvalsdeildinni en sigri Höttur verður oddaleikur haldinn á þriðjudaginn kemur á heimavelli Fjölnis. 

Allir á völlinn að styðja okkar menn!