- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Á fundi atvinnumálanefndar nokkru áður hafði verið lagt til að hlutabréf sveitarfélagsins í Hallormi yrðu auglýst til sölu.
Hugmynd sveitarfélagsins með kaupum á þessum hlutabréfum hefur ávallt verið sú að þegar viðkomandi fyrirtæki hafa náð að byggjast upp og reksturinn kominn vel af stað, væri hlutur Fljótsdalshéraðs í þeim seldur aftur og fjármagnið nýtt til að styðja við aðra nýsköpun í atvinnulífi í sveitarfélaginu.
Áhugasamir kaupendur geta snúið sér til sveitarfélagsins og fengið þar frekari upplýsingar um félögin og skilað þangað inn tilboðum í umrætt hlutafé.