Héraðsskjalasafnið kallar eftir skjölum kvenna

 

Landsmenn fagna 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna í ár. Af því tilefni efna Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn, Þjóðskjalasafn Íslands og héraðsskjalasöfnin til þjóðarátaks um söfnun á skjölum kvenna og hvetja landsmenn til að afhenda þau á skjalasöfn. Bréf, dagbækur og önnur persónuleg gögn geta veitt innsýn inn í líf einstaklinga og fjölskyldna þeirra en einnig varpa þau ljósi á sögu lands og þjóðar.

Héraðsskjalasafn Austfirðinga hefur frá stofnun 1976 tekið við skjölum bæði karla og kvenna sem eru þau skráð á sambærilegan hátt. Meira er þó af skjölum karla og vill starfsfólk safnsins gjarnan bæta hlut kvenna með þátttöku í þessu landsátaki. Áhugaverðast væri að fá bréf, dagbækur og ljósmyndir en auðvitað erum við tilbúin að skoða allt sem fólk vill afhenda safninu til varanlegrar eignar og varðveislu.

Opinberum stofnunum er skylt að afhenda skjöl til héraðsskjalasafns en söfnin hafa einnig tekið við einkaskjölum af ýmsu tagi. Því miður hefur mörgum mikilvægum skjölum og heimildum verið hent gegnum tíðina hvort sem um er að ræða skjöl einstaklinga eða félagasamtaka. Stundum er fólk í vafa um hvað á að varðveita og hvað sé merkilegt. Hvetjum við fólk því til að hafa samband við skjalasafnið til að fá upplýsingar og ráðgjöf varðandi frágang og skil á gögnunum.