Heitavatnslaust á nokkrum stöðum á Egilsstöðum á morgun

Heitavatnslaust verður á miðbæjar- og suðursvæði Egilsstaða frá klukkan 12.30 föstudaginn 11. september vegna viðgerðar á stofnlögn í gatnamótum Selás og Tjarnarbrautar. Þá verður akrein að Tjarnarbraut frá Selás lokað.

Viðgerðin stendur frameftir degi en vonast er til að henni verði lokið um kvöldmatarleyti.

Til miðbæjarsvæðis teljast hús við Tjarnarbraut, Selás, Laufás, Hörgás, Lagarás.
Suðursvæði er þá frá Landsbanka og Inn Bláargerði og Hamra, sem og Vallaveita.

Áætlað var að fara í þessa framkvæmd miðvikudaginn 9. september, en því varð að fresta vegna óviðráðanlegra aðstæðna.

Taka skal fram að þetta hefur engin áhrif á rekstur sundlaugar og íþróttahús. Þar verður heitt vatn á áfram.