Heimildarmyndahátíð á laugardaginn

Heimildarmyndahátíð fer fram í Sláturhúsinu á Egilsstöðum laugardaginn 5. september kl. 17.00. Sýndar verða þrjár myndir en þær eru: "Ef veður leyfir", eftir Huldar Breiðfjörð, "Systur", eftir Helenu Stefánsdóttur og "Drottins náð", eftir Kristján Loðmfjörð, en myndin var tekin upp til sveita á austur- og norðurlandi. Enginn aðgangseyrir er á sýningarnar.