Heilsuátakið í Íþróttamiðstöðinni

Heilsuátak hefur verið í fullum gangi í íþróttamiðstöðinni síðustu mánuði.  Lokaverðlaun átaksins voru veitt 8. maí síðastliðinn en fyrir það höfðu farið fram þrír útdrættir.  Það voru sex þátttakendur sem unnu til lokaverðlaunana.

Þeir sem fengu lokaverðlaun voru Steinunn Ingimarsdóttir, Agnes Brá Birgisdóttir, Hjördís Hilmarsdóttir, Jóhann G. Þorsteinsdóttir, Svava Einarsdótir og Gyða Þ. Guttormsdóttir.
Það voru margir aðilar í bænum sem veittu verðlaun í áttakinu og er þeim þakkað þeirra framlag.
Heilsuátakið fór á stað í Íþróttamiðstöðinni þann 20. febrúar og lauk því þann 30. apríl síðastliðinn. Átakinu var ætlað að hvetja fólk til heilbrigðra lífshátta og um leið var það hvatt til þess að nýta íþróttamannvirkin okkar enn betur. 

Þriðji údráttur fór fram 15. apríl síðastliðinn og voru það Vigdís Sveinbjörnsdóttir og Jóhann Bremnes sem voru dregin út.  Í flokknum fimm mætingar á viku náðu 16 einstklingar að klára dæmið og voru 17 einstaklingar í flokknum þrjár mætingar á viku. 
Það er von starfsmanna íþróttamiðstöðvarinnar að þátttakendur hafi notið þess að taka þátt í átakinu og vonandi hefur það verið þeim sú hvatning til þess að halda áfram á sömu braut.

Frekari fréttir af heilsuátakinu og öðrum fréttum sem tengjast heilsu og hreyfingu má finna á síðu íþróttamiðstöðvarinnar hér.