Heiðdís íþróttamaður Hattar árið 2014

Þrettándagleði Fljótsdalshéraðs og Hattar fór fram í gær, 6. janúar, með hefðbundnu sniði. Kyndlaganga lagði af stað kl 17.15 frá íþróttahúsinu og gengið var í Tjarnargarðinn þar sem kveikt var í þrettándabrennunni. Áætlað er að um 250 manns hafi komið saman og var veður með besta móti. Davíð Þór Sigurðarson, formaður Hattar, setti athöfnina. Gunnlaugur Aðalbjarnarson, stjórnarmaður UÍA, flutti stutt erindi og færði íþróttafélaginu gjöf í tilefni 40 ára afmælisins á síðasta ári.

Verðlaunaafhending íþróttamanna ársins var kynnt en það var Björn Ingimarsson bæjarstjóri ásamt formanni Hattar sem sáu um afhendinguna. Eftir afhendingu var glæsileg flugeldasýning sem Björgunarsveitin á Héraði sá um að framkvæma og sönghópurinn Héraðsdætur sáu um söng.
Starfsmerki Hattar voru veitt í þriðja sinn en þau eru veitt fólki sem hefur unnið óeigingjarnt starf í þágu félagsins til lengri tíma.

Hafsteinn Jónasson hlaut starfsmerki Hattar fyrir vinnu sína í þágu félagsins en hann hefur starfað sem formaður aðalstjórnar, setið í stjórn körfuboltadeildar í rúmlega 10 ár og gegnt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum. Hafsteinn hlaut starfsmerki UÍA 2012.

Elín Sigríður Einarsdóttir hlaut starfsmerki Hattar fyrir vinnu og stjórnarsetu en hún hefur meðal annars gegnt formannstöðu hjá fimleikadeild og skíðadeild. Einnig hefur hún setið í stjórn frjálsíþróttadeildar og verið virkur þátttakenda í foreldrastarfi ýmissa deilda. Þá hefur hún verið skoðunarmaður reikninga fyrir stjórnir innan Hattar.

Íþróttamaður Hattar árið 2014 var fótboltakonan, Heiðdís Sigurjónsdóttir. Heiðdís stóð sig vel í sumar með meistaraflokksliði Hattar og var fyrirliði liðsins. Hún lék 5 leiki með U19 landsliði Íslands. Hún á fast sæti í landsliðinu sem tryggði sér þátttökurétt í milliriðli fyrir úrslitakeppni EM sem fram fer í Ísrael.

Í öðrum greinum voru eftirtaldir fyrir valinu:
Blakmaður : Guðjón Hilmarsson
Fimleikamaður: Kristinn Már Hjaltason
Frjálsíþróttamaður : Atli Pálmar Snorrason
Knattspyrnumaður : Heiðdís Sigurjónsdóttir
Körfuboltamaður : Hreinn Gunnar Birgisson

Íþróttafélagið Höttur vill koma á framfæri þökkum til eftirtalinna fyrir stuðning vegna framkvæmdar þrettándagleði 2014: Brúnas – Innréttingar , Mannvit, Hitaveita Egilsstaða og Fella, Landsbankinn.