Hattarfólk valið í ungmennalandsliðin

Hattarfólkið Heiðdís Sigurjónsdóttir og Ragnar Pétursson hafa verið valin til að keppa með ungmennalandsliðinum í haust.

Heiðdís var valin í U17 ára landslið kvenna í annað skiptið í sumar. Hún er í hópi 18 leikmanna sem Úlfar Hinriksson þjálfari valdi til taka þátt í undankeppni EM 2013. Riðill Íslands fer fram í Slóveníu nú í september og er Ísland í riðli með Slóveníu, Tékklandi og Eistlandi. Fyrsti leikurinn, gegn Slóveníu, fer fram 6. september.

Ragnar Pétursson var valin í U19 landslið karla sem mætir Eistlandi í 2 vináttulandsleikjum um helgina. Leikirnir fara fram föstudaginn 7. september kl. 13.15 á Víkingsvelli og sunnudaginn 9. september á Grindavíkurvelli k. 16.00. Kristinn R. Jónsson, þjálfari U19 karla, valdi 23 leikmenn og koma þeir frá 19 félögum, þar af eru 7 leikmenn á mála hjá erlendum félagsliðum.