Háskólalestin á Egilsstöðum

Vísindaveisla fyrir alla í Egilsstaöaskóla á laugardaginn
Vísindaveisla fyrir alla í Egilsstaöaskóla á laugardaginn

Egilsstaðaskóli verður vettvangur síðustu heimsóknar Háskólalestar Háskóla Íslands í maímánuði þetta árið. Nemendur þriggja skóla á Austurlandi sækja þar námskeið um ólíkar hliðar vísindanna föstudaginn 25. maí og slegið verður upp fjörugri vísindaveislu í Egilsstaðaskóla fyrir alla Austfirðinga laugardaginn 26. maí klukkan 12 til 16. 

Háskólalestin hefur þegar heimsótt Vestmannaeyjar, Borgarnes og Grenivík í maí og alls hátt í 40 sveitarfélög frá því að hún var sett á laggirnar á aldarafmælisári Háskólans 2011.
Áhersla áhafnarinnar á lestinni hefur frá upphafi verið á að kynna vísindi á lifandi, skemmtilegan og fjölbreyttan hátt og glæða þannig vísindaáhuga víða um land, ekki síst hjá ungu fólki.

Föstudaginn 25. maí verður fjölmennt í Egilsstaðaskóla því þar munu um 150 nemendur úr 7.-10. bekk skólans, Seyðisfjarðarfjarðarskóla og Brúarásskóla á Héraði sækja námskeið úr Háskóla unga fólksins. Valið stendur á milli fornleifafræði, hljóðsmiðju, japönsku, eðlisfræði, vísindaheimspeki, lífríkis og plasts, stjörnufræði, tómstunda- og félagsmálafræði, efnafræði og vindmyllusmíði og velur hver nemandi sér þrjú námskeið fyrir daginn.

Laugardaginn 26. maí verður svo efnt til hressilegrar vísindaveislu fyrir alla aldurshópa frá klukkan 12 til 16 í Egilsstaðaskóla. Þar verður hægt að gera óvæntar uppgötvanir og frábærar tilraunir og stunda alls kyns mælingar og pælingar með áhöfn lestarinnar.

Einnig er hægt að:

  •  Kynnast undraheimum japanskrar menningar og máls
  •  Leita að stjörnum og sólum með Sævari Helga Bragasyni
  •  Búa til fjöll og læki í landslagskassanum
  •  Skoða dularfullar efnablöndur Sprengju-Kötu
  •  Kynnast ljósum og hljóðum í gegnum skemmtilega leiki
  •  Búa til vængi og vindmyllur
  •  Spreyta sig á þrautum Vísindavefsins
  •  Læra að lóða
  •  Hlusta á syngjandi Cladni-stálplötu og skál og ótalmargt fleira.


Allir eru velkomnir og aðgangur alveg ókeypis

Hægt er að fylgjast með Háskólalestinni á Facebook-síðu hennar.