Gönguskíðanámskeið fyrir grunnskólakrakka

Um helgina verður haldið gönguskíðanámskeið á Egilsstöðum á vegum Skíðafélagsins í Stafdal.  Í tengslum við það námskeið gefst krökkum á grunnskólaaldri kostur á að prufa gönguskíði á morgun laugardaginn 29. febrúar og fá þá leiðsögn reyndra þjálfara frá skíðagöngufélagi Ólafsfjarðar.

Skíða verður á túninu við Gistihúsið á Egilsstöðum á milli klukkan 12:30 og 14:00.

Eitthvað af búnaði verður á staðnum og ættu allir áhugasamir krakkar að geta prufað að taka hring á gönguskíðum og reynt sig í þessari skemmtilegu íþrótt.

Það er óhætt að hvetja alla áhugasama krakka til að drífa sig niður að Gistihúsi á laugardaginn til að prufa gönguskíði.