Göngum sama á Mæðradaginn

Göngum saman stendur fyrir styrktargöngu á mæðradaginn, sunnudaginn 12. mai nk. kl. 11:00. Gengið verður frá sundlauginni á Egilsstöðum en frítt verður í sund fyrir göngufólkið. Göngum saman hópurinn verður jafnframt í Nettó föstudaginn 10, maí milli kl. 16.00 og 19.00 og laugardaginn 11. maí milli kl. 12.00 og 15.00 og verður þá má sölu á varningi til styrkar málefninu. Göngum saman hópurinn hefur að markmiði að styrkja innlendar grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini.

Göngum saman gangar verður á a.m.k. fjórtán stöðum á landinu og aftur verður verkefnið í samstarfi við Landsamband bakarameistara með brjóstabolluna góðu sem verður seld í bakaríum um land allt mæðradagshelgina.

Göngum saman hvetur fólk til að fjölmenna í gönguna sem er gjaldfrjáls en hægt að styrkja félagið á fjölbreyttan hátt. Nánri upplýsingar á http://www.gongumsaman.is/