Göngum í skólann í september

Ísland tekur þátt í alþjóðlegu verkefni sem nefnist Gögnum í skóla. Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 en Ísland hefur verið með síðan 2007. Á alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og hefst 3. október en vegna birtu og veðurskilyrða á Íslandi var ákveðið að láta verkefnið fara fram í september og ljúka 3. október á alþjóðlega Göngum í skólann deginum. 61 skóli á landinu tekur þátt í verkefninu, þar á meðal Egilsstaðaskóli.

Lesa má nánar um verkefnið á vefsíðunni www.gongumiskolann.is.

Meginmarkmið Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra til að ganga, hjóla eða fara á annan virkan hátt til og frá skóla. Um leið er ætlunin að hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Þá er hvatt til þess að börn fá kennslu um öryggi á göngu og á hjóli. Annað markmið er að draga úr umferð við skóla, þ.e. umferðarþunga, mengun og hraðakstri og stuðla þannig að betra og hreinna loft ásamt öruggari og friðsælli götum og hverfum. Þá er einnig ætlunin að stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál og hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna.

Ökumenn eru hvattir til að taka tillit til gangandi og hjólandi vegfarenda og einnig er minnt á að „mjúku vegfarendurnir“ sjást mun betur og eru öruggari ef þeir nota endurskinsmerki eða endurskinsvesti.