Gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir Kringilsárrana

Umhverfisstofnun vekur athygli á því að um þessar mundir vinnur stofnunin að stjórnunar- og verndaráætlun friðlandsins Kringilsárrana, í samstarfi við Vatnajökulsþjóðgarð og sveitafélagið Fljótsdalshérað. Stjórnunar- og verndaráætlunin mun vera stefnumótandi skjal þar sem sett verða fram markmið til að viðhalda verndargildi friðlandsins. Á heimasíðu Umhverfisstofnunar http://www.umhverfisstofnun.is, undir heitinu „verndaráætlanir í vinnslu“, hefur verið sett upp svæði þar sem er að finna upplýsingar um framvindu áætlunarinnar.

Áhersla er lögð á samráð og er fólk hvatt til að kynna sér vinnu við gerð áætlunarinnar. Ábendingum og athugasemdum sem nýtast munu við gerð hennar er fagnað og má koma þeim á framfæri við Lindu Guðmundsdóttur, friðlýsingateymi umhverfisstofnunar, linda.gu@umhverfisstofnun.is eða í síma 591-2000.