Gengið á Vilhjálmsvelli

Gott að ganga á Vilhjálmsvelli - en passa upp á fjarlægð (Nánasta fjölskylda undanskilin.)
Gott að ganga á Vilhjálmsvelli - en passa upp á fjarlægð (Nánasta fjölskylda undanskilin.)

Enn er leyfilegt að ganga og hlaupa á hlaupabrautinni á Vilhjálmsvelli.

Í dag voru sett upp skilti við völlinn þar sem fólk er minnt á að fara í einu og öllu eftir þeim tilmælum sem Almannavarnir gefa út. Sýnum hvert öðru tillitsemi og virðingu, virðum 2 metra regluna og söfnumst ekki saman í hópum á vellinum.