Árviss áramótabrenna á Fljótsdalshéraði fer fram á nesinu neðan og vestan við kirkjuna og menntaskólann á Egilsstöðum. Eldur verður borinn að brennunni kl. 16:30. Einnig verður boðið upp á veglega flugeldasýningu í umsjón Björgunarsveitarinnar á Héraði. Fljótsdalshérað þakkar árið sem er að líða og óskar íbúum sveitarfélagsins sem og öðrum gleðilegs nýs árs.