Fundur um netöryggi

Mánudaginn 22. febrúar mun Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi, ræða netöryggi og nýsköpun á opnum fundi í Egilsstaðaskóla, fyrir börn, unglinga og foreldra. Megintilgangur fundarins er að hvetja til ábyrgrar hegðunar í rafrænum samskiptum og vekja fólk til umhugsunar um hvernig börn og fullorðnir geti varast ýmsar þær hættur sem fylgt geta netnotkun. Halldór mun kynna svokölluð öryggisboðorð SAFT fyrir börn og foreldra, en sé þeim fylgt eykst öryggi tölvunotenda á heimilinu til mikilla muna. SAFT - samfélag, fjölskylda og tækni, er vakningarátak á vegum samtakanna Heimilis og skóla um örugga tækninotkun barna og unglinga. Fundurinn fer fram í Egilsstaðaskóla og hefst kl. 17.30 og er öllum opinn.

Halldór er á hringferð um landið og nýtir frítíma sinn í hringferðina en hann hefur lengi haft áhuga á þessum málefnum og flutti til að mynda erindi á málþingi SAFT sem haldið var á alþjóðlega netöryggisdaginn 9. febrúar síðastliðinn.

Um málefni netnotkunar segir Halldór: „Það er mín tilfinning að allt of fáir geri sér grein fyrir því hvað felst í ábyrgri netnotkun. Eldri kynslóðir þekkja ekki hvernig það er að alast upp á tímum net- og tölvutækni og eiga því erfitt með að miðla mikilvægri þekkingu til þeirra sem yngri eru. Unga kynslóðin hefur hins vegar góða tölvukunnáttu en hefur enn ekki náð að þróa með sér gagnrýna hugsun þeirra sem eldri eru. Þess vegna er mikilvægt að við tölum saman um þessa hluti, ræðum vandamálin, leitum lausna og aukum þannig öryggi og vellíðan okkar allra í umgengni við Internetið og tölvutæknina almennt. Ég vona að með mínum samræðum við fólk á hringferðinni takist mér að opna augu fólks fyrir öryggi á netinu og hjálpa því að leita uppbyggilegra leiða til að tryggja netöryggi,“ segir Halldór.

Halldór mun halda úti bloggi frá hringferð sinni þar sem birtar verða frásagnir, myndir og myndskeið. Bloggið má finna á slóðinni hringurinn.spaces.live.com. Öryggisboðorðin og nánari upplýsingar um starfsemi SAFT má finna á vefnum saft.is og á Facebook-síðu SAFT. Twitter-merki hringferðarinnar er #hringurinn.