Fundur um Egilsstaðaflugvöll 13. mars

Fimmtudaginn 13. mars, kl. 12.00, verður haldinn almennur fundur á Hótel Héraði á vegum atvinnumálanefndar Fljótsdalshéraðs. Umfjöllunarefni fundarins verður Egilsstaðaflugvöllur. Fundurinn er ekki á morgun, 6. mars, eins og áformað hafði verið.

Á fundinum verður kynnt skýrsla sem unnin var til að meta þörf fyrir lengingu vallarins og bætta aðstöðu.