Fréttatilkynning vegna rangrar fréttar um rekstrarhorfur Fljótsdalshéraðs

Vegna fréttar í Ríkisútvarpinu í gær, miðvikudaginn 4. febrúar 2015, þar sem fram kom m.a. að gert væri ráð fyrir verulegum halla á rekstri sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs á yfirstandandi ári er því hér með komið á framfæri að enginn fótur er fyrir því er fram kemur varðandi áætlaðan rekstur sveitarfélagsins á árinu 2015. Rétt er að líkur eru á að rekstur sveitarfélagsins vegna nýliðins árs verði jákvæður og áætlanir vegna yfirstandandi árs gera einnig ráð fyrir jákvæðum niðurstöðum. Óskað hefur verið eftir því við Ríkisútvarpið að leiðréttingu vegna þessa verði komið á framfæri í fjölmiðlinum með jafn ítarlegum hætti og gert var við umfjöllun um hinar röngu niðurstöður.

Þeim sem vilja kynna sér fyrirliggjandi fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs vegna ársins 2015 er bent á heimasíðu sveitarfélagsins og væri ekki úr vegi að þeir fulltrúar fjölmiðla sem velja að fjalla um fjármál sveitarfélaganna gefi sér tíma til að skoða þær upplýsingar sem þar er að finna og kynni sér um leið þann árangur sem náðst hefur varðandi rekstur sveitarfélagins á umliðnum árum.

Undirritaður veitir hverjum sem svo kýs frekari upplýsingar verði eftir þeim óskað.

F.h. Fljótsdalshéraðs
Björn Ingimarsson
bæjarstjóri