Fréttatilkynning frá Fljótsdalshéraði

Arion banki fjármagnar innlausn leigusamninga við Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf.

• Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi sínum þann 3. desember sl. að nýta á árinu 2014 kaupréttarákvæði í leigusamningi við Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. með kaupum á þeim fasteignum sem falla undir þann samning. Um er að ræða 6 deilda leikskólahúsnæði við Skógarlönd á Egilsstöðum og gervigrasvöll ásamt þjónusturými í Fellabæ.
• Fjárhæð leiguskuldbindingar nam um 697 millj. kr. skv. ársreikningi Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2013.
• Samþykkt var að ganga til samninga við Arion banka um fjármögnun verkefnisins á grundvelli tilboðs frá bankanum frá í nóvember sl. og gefur Fljótsdalshéraði möguleika á að leysa til sín leiguskuldbindingar Fasteignar á hagkvæman hátt. Lánasamningur verður undirritaður í dag þann 22. desember 2014.
• Áhrif þessara kaupa og endurfjármögnunar hefur ekki áhrif á samþykktar áætlanir Fljótsdalshéraðs fyrir árin 2015-2018. Áætlun um að lögbundnu skuldaviðmiði fyrir samstæðureikning sveitarfélagsins verði náð undir 150% árið 2019 stendur óbreytt.
• Fljótsdalshéraðs mun því frá og með 31.12.2014 ekki verða hluthafi í Eignarhaldsfélaginu Fasteign ehf.

Nánari upplýsingar veita:
Björn Ingimarsson, bæjarstjóri
Guðlaugur Sæbjörnsson, fjármálastjóri