Franskar kvikmyndir í Sláturhúsinu

Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs tekur þátt í frönsku kvikmyndahátíðinni í ár og sýnir tvær myndir.
Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs tekur þátt í frönsku kvikmyndahátíðinni í ár og sýnir tvær myndir.

Alliance Française í Reykjavík og franska sendiráðið á Íslandi, í samstarfi við Institut français kynna franska kvikmyndahátíð, sem er nú haldin í nítjánda sinn. Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs tekur þátt í hátíðinni í ár og sýnir kvikmyndir í bíósal Sláturhússinn Menningarseturs.

Myndirnar sem sýndar verða á Egilsstöðum verða tvær: Litli Bóndinn / Petit Paysan (21. febrúar) og Sjúklingarnir / Patients (22. febrúar). Frekari upplýsingar um myndirnar má sjá hér fyrir neðan.

 Sýningar hefjast klukkan 19:30 báða dagana.

 Litli bóndinn (Petit Paysan)

 Pierre er þrítugur kúabóndi. Það kemur upp sjúkdómur í kúm í Frakklandi og Pierre áttar sig á því að ein af kúnum hans er smituð. Hann fær ekki af sér að farga þeim. Þær eru allt sem hann á og hann fer fram á ystu nöf til að bjarga þeim.

 Myndin hlaut frönsku Césarverðlaunin fyrir frumraun leikstjóra. Aðalleikararnir tveir hlutu líka Césarverðlaunin fyrir besta leik í karlhlutverki og besta leik konu í aukahlutverki.

Drama, enskur texti - Lengd: 90 mín - Leikstjórn: Hubert Charuel - Leikarar: Swann Arlaud og Sara Giraudeau.

 Viðburðurinn á Facebook

 

 Sjúklingar (Patients)

Ben getur hvorki baðað sig, klætt né gengið þegar hann kemur á endurhæfingarstöð eftir alvarlegt bílslys. Sjúklingar er saga af endurfæðingu, skrykkjóttri ferð þar sem skiptast á sigrar og ósigrar, tár og skellihlátrar en þó fyrst og fremst samfundir við annað fólk því enginn læknast á eigin spýtur.

Franski slammarinn Grand Corps Malade sótti innblástur í eigin reynslu þegar hann gerði „grípandi og sanna mynd sem menn hlæja og gráta yfir.“ (Rolling Stone)

 Dramatísk gamanmynd, enskur texti - Lengd: 110 mín - Leikstjórn: Grand Corps Malade og Mehdi Edir - Leikarar: Pablo Pauly, Soufiane Guerrab, Moussa Mansaly.

Viðburðurinn á Facebook