Auglýst er eftir framkvæmdastjóra Ormsteitis Héraðshátíð.
Hlutverk framkvæmdastjóra er m.a. að skipuleggja og stýra hátíðinni í samvinnu við ýmsa aðila og vinna að fjármögnun hennar. Um hlutastarf er að ræða en viðkomandi þarf að geta sinnt því af og til frá vormánuðum og í fullu starfi í ágúst. Starfið gæti hugsanlega einnig hentað tveimur samhentum einstaklingum.
Framkvæmdastjóri Ormsteitis þarf að vera hugmyndaríkur og útsjónarsamur og hafa brennandi áhuga á að gera veg hátíðarinnar sem mestan. Hann þarf að eiga auðvelt með að vinna með fólki. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af stjórnun viðburða.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2014. Umsóknum skal skilað til: Stjórn Ormsteitis, Lyngási 12, 700 Egilsstaðir eða á netfangiðormsteiti@ormsteiti.is
Nánari upplýsingar veitir atvinnu-, menningar- og íþróttafulltrúi Fljótsdalshéraðs, f.h. stjórnar Ormsteitis, í síma 4 700 700.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.