Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú heimsækja Egilsstaði og nágrenni á morgun, föstudaginn 14. febrúar, og Seyðisfjörð laugardaginn 15. febrúar.
Heimsókn forsetahjóna hefst í leikskólanum Tjarnarskógi klukkan 10.00 og þaðan verður haldið að Egilsstaðaskóla og Tónlistarskólann á Egilsstöðum þar sem forseti ávarpar nemendur og hlýðir á dagskrá.
Frá Egilsstaðaskóla liggur leiðin í Menntaskólann á Egilsstöðum. Eftir
kynningu á skólastarfinu ávarpar forseti nemendur á sal skólans, svarar fyrirspurnum og snæðir í kjölfarið hádegisverð með nemendum og starfsfólki í mötuneyti skólans.
Eftir hádegi heimsækja forsetahjónin fyrst Hugvang kl. 14.00 en Hugvangur er samheiti nokkurra fyrirtækja í kynningar-, tölvu- og hugbúnaðargeiranum sem mest starfa erlendis en hafa höfuðstöðvar á Egilsstöðum. Frá Hugvangi halda forsetahjón í Egilsstaðabúið og kynnast starfsemi þess. Þaðan liggur leiðin að Hitaveitu Egilsstaða og Fella við Urriðavatn og loks í Sláturhúsið þar sem listamenn hafa starfsstöðvar og fram fer sýningarhald og tónleikar.
Að kvöldi föstudagsins 14. febrúar snæða forsetahjón kvöldverð í boði bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs á Hallormsstað.
Laugardaginn 15. febrúar fara forsetahjónin til Seyðisfjarðar. Þar afhendir forsetafrúin Eyrarrósina, árleg verðlaun sem veitt eru fyrir framúrskarandi menningarstarf á landsbyggðinni. Eyrarrósin var fyrst veitt árið 2005 og er byggð á samstarfi Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands. Dorrit Moussaieff forsetafrú er verndari Eyrarrósarinnar. Athöfnin hefst kl. 13.00 og fer fram í Skaftfelli á Seyðisfirði, en Skaftfell hlaut Eyrarrósina á síðasta ári. Á Seyðisfirði hitta forsetahjónin einnig nemendur Grunnskólans á Seyðisfirði að morgni laugardagsins 15. febrúar, snæða hádegisverð í boði bæjarstjórnar og taka kl. 15.00 þátt í lokahófi Hnallþóru í sólinni, 15 ára afmælissýningar Skaftafells.
Fréttatilkynning frá skrifstofu forseta Íslands 13. febrúar.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.