List án landamæra fer fram á Héraði í vikunni og verða tvær opnanir í tilefni hátíðarinnar að þessu sinni. Önnur verður í Sláturhúsinu á Egilsstöðum miðvikudaginn 8. maí klukkan 18 og hin í Gallerí Klaustri, Skriðuklaustri laugardaginn 11. maí klukkan 14.
Nemendur af listnámsbraut ME sjá um skipulagningu hátíðarinnar í ár undir leiðsögn kennslustjóra brautarinnar, Ólafar Bjarkar Bragadóttur.
Verkin sem verða til sýnis koma víða að en sýningin er haldin í samstarfi við bæði einstaklinga og hópa sem vildu taka þátt og láta ljós sitt skína. Heimsmarkmiðin og sjálfbærni voru höfð að leiðarljósi í mörgum verkanna og ekki síst hvað varðar að eyða fordómum og vinna að jafnrétti í heiminum öllum til handa. Fögnum fjölbreytileikanum og gleðjumst saman.
Á listahátíðinni má sjá: Handverk, þrykk, textílverk, handgerð kerti og aðra nytjalist frá Stólpa, skúlptúra, málverk, teiknimyndaseríur o.fl. frá nemendum leik- grunn- og framhaldsskóla af Austurlandi.
Samstarfsverkefni listamannanna Odee og Arons Kale verður í Sláturhúsinu, kvikmyndin Byrjuð að leita, sem er afrakstur kvikmyndanema ME/VA í samstarfi við Stúdío Sýrland, heimildamynd Önnu Birnu um Vistsporin og heimsmarkmiðin. Þá verða sýndar nokkrar kvikmyndir nemenda starfsbrautar ME og Stólpa; Kristbjörn, Valtýr á grænni treyju, Nátttröllið, Ævintýri og Töfraflautan. Verkið Tyggjó sem er lokaverkefni Steingríms Arnar nemanda í ME verður í frystiklefanum, Ljósmyndasýning KOX – filman er ekki dauð á efri hæð Sláturhússins. Tónlistaratriði nemenda ME, Sokara, Kristófer og fleiri, verða flutt við opnun.
Boðið verður upp á léttar veitingar við opnun, frítt inn og allir velkomnir.
Báðar sýningarnar eru opnar á opnunartímum húsanna og standa út mánuðinn.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.