Fljótsdalshérað komst í úrslit

Lið Fljótsdalshéraðs komst í úrslit í Útsvari, sigraði lið Skagfirðinga með 68 stigum gegn 36 í kvöld. Til hamingju Björg, Eyjólfur og Þorsteinn. Við erum stolt af ykkur!

Seinni undanúrslitin fara fram eftir viku. Þá keppa Reykjavík og Seltjarnarnes og sigurliðið úr þeirri rimmu mætir liði Héraðsbúa föstudaginn 24. apríl.