Fljótsdalshérað kemur að rekstri Náttúrurstofunnar

Í gær,  27. maí, var undirritaður samningur milli Fjarðabyggðar, Fljótsdalshéraðs og umhverfisráðuneytisins um framhald rekstrar Náttúrustofu Austurlands. Þetta er í fyrsta sinn sem Fljótsdalshérað kemur rekstri náttúrustofunnar.

Aðkoma Fljótsdalshéraðs að rekstri stofunnar kemur til með að styrkja bæði rekstrargrundvöll og þá starfsemi sem þar fer fram. Jafnframt er samstarf sveitarfélaganna mikilvægur liður í uppbyggingu þekkingarsamfélags á Austurlandi. Í samstarfinu felast ótal tækifæri tengd þekkingaröflun um náttúru Austurlands, m.a. tengd uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs, Gerpissvæðis og frekari upplýsingaöflun um hreindýr.

Stofan er elst sjö starfandi náttúrustofa á landinu, stofnuð árið 1995. Sveitarfélagið Neskaupstaður, nú hluti Fjarðabyggðar, hafði frumkvæði að stofnun hennar. Höfuðstöðvar stofunnar eru í Neskaupstað, en einnig er rekin starfsstöð á Egilsstöðum. Náttúrustofan hefur það að markmiði að efla þekkingu á náttúru Austurlands. Rannsóknir á hreindýrum og gróðurfari skipa stóran sess í starfsemi stofunnar. Meðal annarra viðfangsefna má nefna rannsóknir á fuglalífi, fræðslu, ráðgjöf og eftirlit með náttúru Austurlands.