Fljótsdalshérað – Fjárhagsáætlun 2014 – 2017

Tillaga að fjárhagsáætlun ársins 2014 – 2017 var samþykkt á fundi bæjarráðs Fljótsdalshéraðs þann 23. október 2013 og er til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs þann 6. nóvember. Jafnframt er lögð fram 3ja ára áætlun fyrir árin 2015-2017. Áætlað er að seinni umræða um fjárhagsáætlunina fari fram á fundi bæjarstjórnar þann 20. nóvember 2013.

Helstu markmið fjárhagsáætlunar Fljótsdalshéraðs eru:

• Jafnvægi skal vera á milli samanlagðra rekstartekna og gjalda A- og B-hluta á hverju þriggja ára tímabili.
o Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2014 verður afgangur af rekstri bæði A- og B- hluta á árinu.

• Framlegð rekstrar (niðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði) skal vera á bilinu 15 – 20%.
o Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2014 verður framlegðarhlutfall A-hluta 17,5% og í samstæðu A og B hluta 22,5%.

• Veltufé frá rekstri A- og B-hluta nemi ekki lægri fjárhæð en sem nemur afborgunum og vöxtum af langtímalánum.
o Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2014 mun veltufé frá rekstri nema 562 millj. kr. en afborganir af skuldbindingum verða um 412 millj. kr. í samstæðu A og B hluta. Í A hluta nemur veltufé frá rekstri um 362 millj. kr. en greiðslur vegna skuldbindinga nema um 312 millj. kr.

• Skuldir og skuldbindingar samstæðu (A- og B-hluta) fari ekki yfir 250% af heildartekjum.
o Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2014 verður skuldaviðmið samstæðu A og B hluta skv reglugerð 221%. Hjá A hluta verður skuldaviðmið 170% í árslok 2014. Skuldahlutfall A-hluta verður 174% og samstæðu A og B hluta um 253% í árslok 2014.

o Árið 2017 verður skuldaviðmið A hluta um 138% og í samstæðu A og B hluta er áætlað að skuldahlutfallið nemi um 177%. Skuldahlutfall A hluta verður 141% og skuldahlutfall samstæðu A og B hluta verður 203% í árslok 2017.

• Skuldaviðmið samstæðu A og B hluta mun árið 2021 fara niður fyrir 150% skv langtímaáætlun. Áætlað er að skuldaviðmið A hluta fari niður fyrir 150% árið 2016.

Lögð hefur verið mikil áhersla á að framagreind viðmið séu tekin alvarlega við vinnu fjárhagsáætlana undanfarin ár og áætlun 2014 byggir á þeim forsendum. Slík aðlögun er liður í því að styrkja rekstur sveitarfélagsins og treysta enn frekar fjárhagslega stöðu þess til að gera það betur í stakk búið til að mæta þörfum íbúa á næstu árum..

Inni í skuldbindingum sveitarfélagsins er gert ráð fyrir að verja 1.500 millj. kr. í byggingu á nýju hjúkrunarheimili á Egilsstöðum. Samningar liggja fyrir við Velferðarráðuneyti um þátttöku ríkissjóðs í 85% af byggingarkostnaði sem greiðist í formi leigu næstu 40 árin. Jafnfram er fyrirliggjandi samningur við Heilbrigðisstofnun Austurlands um daglegan rekstur á hjúkrunarheimilinu þegar starfsemi hefst í nýju húsnæði í ársbyrjun 2015.
Bygging hjúkrunarheimilisins er löngu orðin tímabær og búa öldruðum þar með þá umgjörð sem þeim ber og efla í leiðinni atvinnustigið á svæðinu og rekstur HSA.


Nánari upplýsingar veitir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri