Fljótsdalshérað auglýsir styrki til menningarstarfs á árinu 2018

Atvinnu- og menningarnefnd Fljótsdalshéraðs auglýsir til umsóknar styrki til menningarstarfs með umsóknarfresti til og með 15. desember 2017. Annars vegar er um að ræða verkefnastyrki og hins vegar styrki til almennrar liststarfsemi. Umsækjendur verða að tengjast Fljótsdalshéraði með búsetu, eða með því að viðburðurinn fari fram á Fljótsdalshéraði eða feli í sér kynningu á menningarstarfsemi á Fljótsdalshéraði. Afgreiðsla styrkumsókna mun liggja fyrir fyrir 1. febrúar 2018.

Umsækjendur er hvattir til að kynna sér Reglur um úthlutun menningarstyrkja Fljótsdalshéraðs á heimasíðu sveitarfélagsins, undir Stjórnsýsla > Reglur Fljótsdalshéraðs. Þar má jafnframt sækja umsóknareyðublað undir Stjórnsýsla > Eyðublöð og umsóknir.

Umsóknir sendist til:
Fljótsdalshérað - Menningarstyrkir
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
eða á netfangið fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is

Hér má finna umsóknareyðublað.

Hér eru reglur um úthlutun menningarstyrkja Fljótsdalshéraðs.