Fljótsdalshérað auglýsir styrki til íþrótta- og tómstundastarfs

Íþrótta- og tómstundanefnd Fljótsdalshéraðs auglýsir til umsóknar styrki til íþrótta- og tómstundastarfs með umsóknarfrest til og með 15. mars 2020.

Fljótsdalshérað veitir styrki til einstaklinga, hópa, félagssamtaka, fyrirtækja og stofnana til íþrótta- og tómstundatengdra verkefna. Við mat á umsóknum eru æskulýðsstefna og jafnréttisstefna Fljótsdalshéraðs hafðar til hliðsjónar.

Afgreiðsla styrkumsókna liggur fyrir í byrjun apríl 2020. Styrkir eru einungis greiddir út á því ári sem þeir eru veittir og færast ekki á milli ára nema sérstaklega sé um það samið.

Umsækjendur er hvattir til að kynna sér reglur um úthlutun styrkja íþrótta- og tómstundanefndar Fljótsdalshéraðs á heimasíðu sveitarfélagsins. Þar má jafnframt sækja um styrkinn á rafrænu eyðublaði.