Fjölbreytt sumarstörf á vegum Fljótsdalshéraðs

Auglýst hafa verið fjölbreytt sumarstörf á vegum Fljótsdalshéraðs, starfslýsingar má sjá hér. Störfin eru einkum ætluð skólafólki, en aðrir sem hafa áhuga á að vinna utandyra í sumar, geta einnig sótt um.


Umsóknum skal skila á eyðublöðum, merktum „Umsókn um sumarvinnu hjá Fljótsdalshéraði“, sem eru á heimasíðu sveitarfélagsins,  undir hnappnum „Umsóknir“. Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri umhverfismála á netfanginu freyr@egilsstadir.is eða í síma 4 700 700.