Fjárhagsáætlunin samþykkt

Á fundi bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, miðvikudaginn 16. nóvember 2011, var fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012, auk þriggja ára áætlunar fyrir árin 2013 – 2015, samþykkt við síðari umræðu.

Helstu viðmið fjárhagsáætlunar Fljótsdalshéraðs eru:

• Jafnvægi skal vera á milli samanlagðra rekstartekna og gjalda A- og B-hluta á hverju þriggja ára tímabili.
o Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012 verður afgangur af rekstri bæði A- og B- hluta á árinu.
• Framlegð rekstrar (niðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði) skal vera á bilinu 15 – 20%.
o Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012 verður framlegðarhlutfall A-hluta 21% og í samstæðu A og B hluta 25%.
• Veltufé frá rekstri A- og B-hluta nemi ekki lægri fjárhæð en sem nemur afborgunum og vöxtum af langtímalánum.
o Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012 mun veltufé frá rekstri nema 479 millj. kr. en afborganir af skuldbindingum verða um 415 millj. kr. í samstæðu A og B hluta. Í A hluta nemur veltufé frá rekstri um 347 millj. kr. en greiðslur vegna skuldbindinga nema um 328 millj. kr.
• Skuldir og skuldbindingar samstæðu (A- og B-hluta) fari ekki yfir 250% af skilgreindum tekjum.
o Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012 verður skuldahlutfall A-hluta 215% og samstæðu A og B hluta um 250%.
o Árið 2015 verður skuldahlutfall A hluta um 197% og í samstæðu A og B hluta er áætlað að skuldahlutfallið nemi um 223%.

Inni í skuldbindingum sveitarfélagsins eru kaup á fasteignum ríkisins vegna málefna fatlaðra að fjárhæð 122 millj. kr. sem væntanlega verður gengið frá á árinu 2011 og síðan er í fjárhagsáætlun gert ráð fyrir að farið verði af stað með byggingu á hjúkrunarheimili og verði á árunum 2012 og 2013 varið 1.000 millj. kr. til þess verkefnis. Í báðum þessum verkefnum koma framlög á móti frá ríkisvaldinu á næstu árum til að mæta stofnkostnaði.

Bygging hjúkrunarheimilisins er löngu orðin tímabær og vonir standa til þess að hægt verði að koma verkefninu í formlegan farveg fljótlega á næsta ári og búa öldruðum þar með þá umgjörð sem þeim ber og efla í leiðinni atvinnustigið á svæðinu og rekstur HSA.

Skuldbindingar án HEF (veitustofnanir) nema 228% af heildartekjum í árslok 2012 og verða komnar í 208% í árslok 2015.


Skýrsluna í heild má lesa hér.
Nánari upplýsingar veitir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri