Fjárhagsáætlun 2017 – 2020

Fjárhagsáætlun 2017 og 2018 - 2020

Tillaga fjárhagsáætlunar Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2017 ásamt 3ja ára áætlun fyrir 2018-2020 er lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs á fundi þann 2. nóvember 2016 og er byggð á grunni þess fjárhagsramma sem nefndum  sveitarfélagsins var ætlað að laga sig að í endanlegri áætlanagerð.  Áætlað er að seinni umræða bæjarstjórnar um fjárhagsáætlunina fari fram þann 16. nóvember.

Þriggja ára áætlun er hluti af þeirri áætlun sem hér er lögð fram.

Lykilmarkmið bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs undanfarin ár:

  • Jafnvægi skal vera á milli samanlagðra rekstartekna og gjalda A- og B-hluta á hverju þriggja ára tímabili.
    • Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2017 er rekstarjöfnuður áranna 2015-2017 jákvæður um 486 millj. kr.  fyrir samstæðu  A- og B- hluta og 335 millj. kr í A hluta fyrir sama tímabil.  
  • Framlegð rekstrar (niðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði) skal vera á bilinu 15 – 20%.
  • Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2017 verður framlegðarhlutfall A-hluta 16,8% og í samstæðu A og B hluta 22%. 
  • Veltufé frá rekstri A- og B-hluta nemi ekki lægri fjárhæð en sem nemur afborgunum og vöxtum af langtímalánum.
  • Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2017 mun veltufé frá rekstri nema 674 millj. kr. en afborganir af skuldbindingum verða um 526 millj. kr. í samstæðu A og B hluta. 
  • Skuldir og skuldbindingar samstæðu (A- og B-hluta) fari ekki yfir 250% af skilgreindum tekjum.
    • Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2017 verður skuldaviðmið samstæðu A og B hluta skv. reglugerð 171% og hjá A hluta verður skuldaviðmið 132% í árslok 2017. 
  •  Áætlað er að skuldahlutfall A hluta, sem er hinn eiginlegi sveitarsjóður, fari niður fyrir 150%  þegar á árinu 2016. 

Framagreind viðmið hafa á undanförnum árum  verið tekin alvarlega og hefur verið lögð mikil áhersla á það við vinnu fjárhagsáætlana.  Árangur þessara markmiða hefur þegar sýnt sig, því tekist hefur að laga rekstur sveitarfélagsins að breyttum aðstæðum, treysta fjárhag þess og gera það betur í stakk búið til að mæta þörfum íbúanna í framtíðinni.

 Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar 2016-2020 

-          Rekstarafkoma A og B hluta samkvæmt fyrirliggjandi áætlun er jákvæð um 186 millj. kr. 

-          Skatttekjur hækka um 127 millj. kr. á milli áranna 2016 og 2017 og nema 3.097 millj. kr. sem er 4,2% hækkun. 

-          Útsvarstekjur nema 1.768 millj. kr. og hækka um 6,7% miðað við útkomuspá fyrir árið 2016.    

-          Áætlað er að fasteignaskattur nemi um 349 millj. kr. sem er 5,5% hækkun frá 2016. 

-          Framlög Jöfnunarsjóðs  nema 1.020 millj. kr. sem er 2,3% hækkun frá áætlaðri útkomu 2016. 

-          Innri leiga á málaflokka í rammaáætlun hækkar almennt um 1,7% frá áætlun ársins 2016. 

-          Útkomuspá launa fyrir árið 2016 er áætluð um 1.928 millj. kr. en verða um 2.044 millj. kr. á árinu 2017 sem gerir um 6,0% hækkun á milli ára. 

-          Framlegð (EBITDA) í A hluta er áætluð 610 millj. kr. eða 16,8% og í samstæðu A og B hluta er framlegð áætluð 892  millj. kr. eða 22%. 

 

Önnur atriði sem einkenna áætlun 2017: 

Ef farið er í gegnum frekari greiningu á þeirri áætlun sem hér er lögð fram eru kannski nokkur almenn atriði sem vert er að geta: 

1)      Fjárfestingar ársins 2017 í Eignasjóði eru áætlaðar 113 millj.  Hækkun um 25 millj. kr. frá samþykktri 3ja ára áætlun fyrr í vetur í ljósi hugmynda um kaup á bíl fyrir ferðaþjónustu fatlaðra og vegna viljayfirlýsingar við Hött um byggingu fimleikahúss.  

2)      Ekki er gert ráð fyrir lántökum á árinu 2017. 

3)      Ekki er gert ráð fyrir sölu eigna í samþykktri 3ja ára áætlun. 

4)      Hækkað er aftur framlag til viðhalds gatna upp í 28 millj. kr. samanborið við 17 millj. kr. á árinu 2016. 

5)      Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Fljótsdalshéraði á árinu 2017 og eru útgjöld umfram tekjur áætluð um 20 millj. kr.  

6)      Gert er ráð fyrir endurnýjun Tjarnarbrautar frá gatnamótum Skógarlanda að gatnamótum Tjarnarlanda og er hluti af fjárfestingaáætlun.  

7)      Ekki liggur fyrir endanleg niðurstaða um hækkun mótframlaga í LSR og Brú.  Um er að ræða töluverðar fjárhæðir sem tekin verður afstaða til við seinni umræðu eða síðar með viðauka 

8)      Ekki liggur fyrir úrskurður yfirskattanefndar á kæru Landsvirkjunar þess efnis að Fljótsdalshérað skuli leggja á fasteignaskatt skv A gjaldstofni eða 0,5% í stað 1,65%.  En sveitarfélagið vill leggja á fasteignaskatt miðað við að vatnréttindi Kárahnjúka séu skilgreind í atvinnuskyni.  Munar þarna um 20 millj. kr. í hvorum flokki gjaldstofninn er og skiptir sveitarfélagið því verulegu máli hvernig því máli lyktar.

 

 Nánari upplýsingar veitir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs.