Fimm framboðslistar í boði á Fljótsdalshéraði

Frestur til að skila framboðslistum til sveitarstjórnarkosninga í sveitarfélaginu Fljótsdalshéraði rann út klukkan 12 á hádegi þann 10. maí 2014. Fimm framboðslistar bárust yfirkjörstjórn og hefur hún á fundi sínum þann 11. maí síðastliðinn úrskurðað öll framboðin gild.

Sveitarstjórnarkosningarnar á Fljótsdalshéraði fara fram 31. maí næstkomandi.

Hér má sjá framboðslistana  og hverjir skipa þá.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá yfirkjörstjórn, dagsett 11. maí, en hana skipa Bjarni G. Björgvinsson, Einar Rafn Haraldsson og Erlendur Steinþórsson.