Fimleikadeild Hattar að gera það gott

Fimleikadeild Hattar fór á fyrsta mót vetrarins í 1. deild fimleikasambands Íslands um síðustu helgi. Þetta var haustmót FSÍ sem haldið var á Selfossi og voru skráðir til leiks 640 keppendur. Þrjátíu og þrír krakkar á aldrinum 10- 19 ára fóru til keppni frá fimleikadeild Hattar, í Landsreglum og var keppt í þremur flokkum. Allir flokkar voru mjög fjölmennir og keppni hörð.

Í 5. flokki ( 9-12 ára ) fengu keppendur fimleikadeildar Hattar brons fyrir samanlagðan árangur, en þetta er í fyrsta skipti sem fimleikadeild Hattar hlýtur verðlaun í þessum flokki. Í 4. flokki ( 12-15 ára ) voru keppendur fimleikadeildar Hattar með hæstu einkunn allra liða á trampólíni og enduðu í 7. sæti fyrir samanlagðan árangur. Í 3 flokki ( 15 ára og eldri ) fengu keppendur fimleikadeildar Hattar gull fyrir samanlagðan árangur.