Boðað er til samveru á sal í Fellaskóla þriðjudagsmorguninn 10. apríl klukkan 8:15.
Í um klukkustund gefst nemendum, starfsfólki, foreldrum og öðrum áhugasömum kostur á að velta fyrir sér æskilegu fyrirkomulagi á símanotkun í Fellaskóla. Á hverju borði verður blandað saman fulltrúum þessara hópa og munu þeir svara spurningum, jafnt einstaklingslega og borðið í heild. Vonast er til að á grunni þessara umræðna og annarrar vinnu sem farið hefur fram verði hægt að setja fram tillögur um símanotkun í Fellaskóla, sem flestir geta verið sáttir við.
Eftir samveru á sal er fólki velkomið að fylgjast með skólastarfinu fram að frímínútum klukkan 10:20.
Nemendur geta ýmist tekið þátt í samræðum eða haft ofan af fyrir sér í kennslustofum. Yngri systkini eru velkomin og munu eldri nemendur sjá um uppbyggilega afþreyingu á bókasafninu.
Með von um að foreldrar og aðrir áhugasamir um skólastarf í Fellaskóla og á Fljótsdalshéraði, þeirra á meðal fræðslunefndarmenn og aðrir pólitískir fulltrúar sveitarfélagsins líti inn og taki þátt í léttu spjalli yfir morgunhressingu.
Skólaráð og Foreldrafélag Fellaskóla
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.