Fellaskóli er 20 ára í dag

Haldið er upp á 20 ára afmæli Fellaskóla í dag, laugardaginn 6. október með dagskrá sem hefst kl. 12. Í leiðinni fer fram uppgjör þemadaga sem voru á fimmtudag og föstudag og voru helgaðir hjálparstarfi barna í fátækum löndum.

Meðal annars var norræna skólahlaupið haldið og að þessu sinni var það einnig áheitahlaup fyrir UNICEF Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Á afmælisdagskráni kemur í ljós hversu mikið safnaðist.

 

Dagskrá afmælishátíðar Fellaskóla má sjá á heimasíðu skólans http://www.fljotsdalsherad.is/fellaskoli/