Fæðingadeild HSA fær góða gjöf

Soroptimistaklúbbur Austurlands hefur fært fæðingadeild Heilbrigðisstofnunar Austurlands hjartasírita (monitor) að gjöf að verðmæti um 2.100.000 kr. Tilefnið er 10 ára afmæli klúbbsins.

Síritinn er notaður fyrir og í fæðingu til að fylgjast með hjartslætti barns og tíðni samdrátta hjá móður. Þessi síriti mælir einnig hjartslátt tvíbura og móður. Hann hefur ennfremur möguleika á þráðlausri stöð sem myndi gera konum kleift að hreyfa sig á meðan á fæðingu stendur og yrði því til stóraukinna þæginda fyrir konur í fæðingu. Tækið eykur öryggi í þjónustu fæðingadeildarinnar enda var sá búnaður sem fæðingadeildin átti fyrir úreldur.

Fæðingadeild HSA í Neskaupstað er eina fæðingadeildin á Austurlandi en með gjöfinni vilja Soroptimistar bæta aðstöðu kvenna til fæðinga á svæðinu. Síritinn var formlega afhentur fæðingadeildinni þann 20. september kl. 18:00.

Soroptimistaklúbbur Austurlands var stofnaður í september árið 2003 af konum á Fljótsdalshéraði, Seyðisfirði og Borgarfirði eystra. Klúbburinn er hluti af alþjóðasamtökum Soroptimista.

Soroptimistasamtökin stuðla að heimsmynd þar sem framlag kvenna og stúlkna nær fram því besta sem völ er á. Soroptimistar skapa tækifæri til að breyta lífi kvenna og stúlkna. Þær hvetja til jafnræðis og jafnréttis, vinna að öruggu og heilsusamlegu umhverfi, auka aðgengi að menntun, efla leiðtogahæfni og hagnýta þekkingu til sjálfbærrar framtíðar. Alls eru Soroptimistar um 95.000 og starfa í 3.000 klúbbum í 120 löndum um allan heim. Nánari upplýsingar um samtökin er að finna á www.soroptimist.is.