September er BRASember

BRAS er menningarhátíð þar sem börnum og ungu fólki á Austurlandi er gefið tækifæri til að skapa og upplifa listir í víðu samhengi. Hátíðin var haldin í fyrsta skiptið 2018 og hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn í haust, en septembermánuður er tileinkaður menningu barna og ungmenna á Austurlandi. 

Einkunnarorð hátíðarinnar eru Þora! Vera! Gera! enda er leiðarljós hátíðarinnar að hvetja börn og ungmenni á Austurlandi til að þora að vera þau sjálf og framkvæma á eigin forsendum.

Á Fljótsdalshéraði hafa verið skipulögð fjölmörg verkefni í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins, í samstarfi við tónlistarskólana og ýmsar menningarstofnanir á Austurlandi og víðar. Þessi verkefni eru á skólatíma nemenda.

Einnig er boðið upp á margs konar verkefni og skemmtilega dagskrá utan hefðbundins skólatíma þar sem börn og ungmenni geta tekið þátt eða mætt með foreldrum eða forráðafólki á viðburðina til að njóta þeirra. Hápunktur Bras að þessu sinni er sennilega sýning og dagskrá Sirkus Íslands í íþróttamiðstöðinni Egilsstöðum laugardaginn 14. september klukkan 16:00 – 19:00. Þá eru allir velkomnir og ókeypis er fyrir alla aldurshópa.


Menningarhátíð barna og ungmenna í leik- og grunnskólum Fljótsdalshéraðs

Það og Hvað – leiksýning fyrir leikskólabörn

Sýning um persónurnar ,,Það og Hvað“ frá Leikhópnum Flækju. Þær eru forvitnar um lífið og tilveruna og þurfa hjálp barnanna við að svara stóru spurningunum. Þær tjá vangaveltur sínar með söng og dansi. Sýningin er litrík, einlæg og skemmtileg.

Hádegishöfði - 3. september kl. 10:00
Brúarásskóli - 3. september kl. 14:00
Tjarnarland - 4. september kl. 13:00
Skógarland - 4. september kl. 14:00

Ritlist, tjáning

Jákvæð tjáning með orðum, leikjum og sjálfseflingu. Allir fá rými til að koma hugmyndum sínum á framfæri, hvort sem það er að skrifa sögur með blaði og penna eða búa til sögur í skýjunum, með steinum eða úr sandi. Allt má og allir fá tækifæri til að hugsa upphátt. Skemmtilegir og sjálfseflandi leikir, jákvætt hugafar.

Fellaskóli - 8., 9., 10. bekkur 9. sept kl. 11:20 og 10. sept kl. 10:10
Egilsstaðaskóli - 2. bekkur 11. sept kl. 10:10
Brúarásskóli – Allir bekkir skólans 12. sept kl. 9:00

Sunnifa – „því ég var eins eftir sem fyrr undir hans valdi“

Nemendur 8., 9. og 10. bekkjar grunnskólanna skoða sýninguna í Sláturhúsinu.
Sýningin býður upp á fjölda nálgana þegar kemur að því að vinna úr þeim þemum og hugmyndum sem í henni búa. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi lesið þjóðsögunar um Sunnefu áður en sýningin er skoðuð. Nemendum er boðið upp á leiðsögn um sýninguna og stuttan fyrirlestur og spjall að henni lokinni.
Við brottför fá nemendur söguna um galdrakerlinguna Galdra-Imbu með sér og geta þeir í framhaldinu unnið með hana í skólunum líkt og gert er með sögu Sunnefu á sýningunni.

Egilsstaðskóli - 9. bekkur 19. sept kl. 10:30 og 25. sept kl. 14:05
10. bekkur 20. sept, 27. sept. og 4. okt. kl. 12:40.
Brúarásskóli – 8.-10. bekkur
Fellaskóli – 8.-10. bekkur 19. sept kl. 10:40

Myndlistarverkefni Skaftfells – Íslensk alþýðulist

Nemendur fræðast um íslenska alþýðulist og alþýðulistamenn og vinna svo verkefni í kjölfarið. Leiðbeinandi á vegum Skaftfells mun ferðast í alla skóla Austurlands. Einnig er í boði að fara með nemendur í heimsókn í Skaftfell og vinna þar undir leiðsögn starfsfólks miðstöðvarinnar. Mögulegt er að nemendur vinni áfram út frá því sem þeir hafa meðtekið þar í skólunum.

Egilsstaðskóli - 7. bekkur 24. sept
Brúarásskóli –  1. okt
Fellaskóli - 5.-7. bekkur 11. sept

Tónlistarstund Tónlistarmiðstöðvar Austurlands

Fyrirlestraröð sem ætlað er að kveikja áhuga á tónlistariðkun og tónlistarsköpun.
Tónlistarstund (2 kennslustundir) er fyrir börn í 5.-10. bekk á Austurlandi. Viðburðurinn ferðast milli þeirra skóla sem þess óska í september 2019. Markmiðið er að virkja frumsköpun hjá börnunum og hvetja þau til dáða í tónlistarsköpun.

Egilsstaðskóli - 5. bekkur og 8. bekkur 10. sept kl. 9:00
Fellaskóli – 1. – 4. bekkur 18. sept kl. 12:00

Bæjarsirkusinn

Grunnskólanemendum frá Egilsstöðum, Fellabæ, Brúarási, Borgarfirði eystra, Seyðisfirði og Vopnafirði er boðið í sirkus 12. september í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum.
Bæjarsirkusinn er sirkussýning fyrir káta krakka þar sem töfrar sirkusins vakna til lífsins um land allt. Sýningin er liður í því að gera Sirkus Íslands að sirkus allra landsmanna og leyfa sem flestum að njóta gleðinnar. Óttalaus áhættuleikari, ótrúleg línudansmær, lipurt loftfimleikafólk og ljónatemjari kynna þig fyrir sirkusnum á hátt sem þú hefur aldrei séð áður!

Þjóðsagna „Stop motion“

Verkefnið gengur út á að sagnahefð fortíðar og sköpunaraðferðir nútímans eru sameinaðar í eitt.
Í námsefni Minjasafnsins er fræðslupakki um þjóðsögur Sigfúsar Sigfússonar. Pakkinn inniheldur margvísleg verkefni tengd sögum Sigfúsar. Nemendur vinna með efnið í skólanum (að eins miklu leyti og kennarar vilja) og koma síðan í heimsókn í Safnahúsið þar sem boðið er upp smiðju þar sem nemendur gera “stop motion“ mynd (hreyfimynd) upp úr þjóðsögu að eigin vali undir leiðsögn leiðbeinenda.

Egilsstaðskóli - 3. og 4. bekkur
Brúarásskóli – miðstig 23. sept. kl. 10:00
Fellaskóli – 5.-7. bekkur


Að skapa úr bókum – endurnýting og listsköpun

Nemendum boðið að koma í Safnahúsið og skapa listaverk úr bókum undir handleiðslu leiðbeinanda sem söfnin útvega. Efniviðurinn kemur frá Bókasafni Héraðsbúa. Í kjölfarið er sett upp sýning með verkunum í Safnahúsinu.

Egilsstaðskóli - 6. bekkur
Fellaskóli – 1.-4. bekkur 16. sept kl. 11:00

Maður og náttúra

Útiverudagar í upphafi skólans að hausti notaðir til að safna „efnivið“ í ýmsu formi í listræna vinnu í framhaldinu í skólunum. Möguleg úrvinnsla getur t.d. verið í formi myndlistar, sögugerðar eða ljóðagerðar sem tengist svæðinu, unnið með þjóðsögur frá svæðinu, osfr.

Fellaskóli – 1.-4. bekkur

Söngstund leikskólabarna og yngstu nemenda grunnskóla

Elstu leikskólabörnin og yngstu börn grunnskólanna á Fljótsdalshéraði æfa þrjú lög eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur með nemendum og kennurum tónlistarskólanna og flytja þau fyrir foreldra og forráðafólk. Tónlistin er útsett af Sigursveini Magnússyni.

Brúarásskóli, Hádegishöfði, Skógarland Tjarnarland, Fellaskóli, Egilsstaðaskóli - 9. okt kl. 17:00 í Egilsstaðakirkju

Smiðja leikskólabarna í Sláturhúsinu

Smiðjur í Sláturhúsinu fyrir næstelstu börn leikskólanna. Nánar kynnt síðar.

Velkomin heim – sýning Þjóðleikhússins

23. september kl. 13.00 í Valaskjálf fyrir  8. og 9.  og 10. bekk
Sýning leikhópsins Trigger Warning á einleiknum Velkomin heim hlaut mikið lof á síðasta leikári. Í ár bjóða Þjóðleikhúsið og Trigger Warning upp á aðlagaða sýningu fyrir unglingastig grunnskóla.

Vala Rún fæddist á hrísgrjónaakri í Taílandi um miðja 20. öldina. Hún veit ekki hvenær hún á afmæli, bara að hún fæddist einhvern tímann á monsúntímabilinu. Hún kynntist aldrei föður sínum, missti móður sína sex ára og var meira og minna á eigin vegum eftir það. Árið 2019 stendur dóttir hennar á leiksviði í Þjóðleikhúsinu, fyrsta konan af asískum uppruna sem útskrifast af leikarabraut Listaháskóla Íslands.

Í leiksýningunni Velkomin heim! segir leikkonan María Thelma Smáradóttir sögu móður sinnar, fjallar um líf hennar í Taílandi og reynslu hennar þegar hún kom fyrst til Íslands fyrir 26 árum.

Völu Rún fannst hún aldrei eiga heima neins staðar í Taílandi. Á Íslandi leið henni eins og hún væri komin heim, og þó þekkti hún hér engan fyrir og talaði ekki tungumálið. Hvað er það að eiga heima einhvers staðar? Hvað er heimaland?

Brúarásskóli, Egilsstaðaskóli, Fellaskóli

Ómar orðabelgur, sögustund – sýning Þjóðleikhússins

23. september kl. 10:00 í Valaskjálf fyrir elsta árgang leikskóla og 1. bekk grunnskólanna.
Ómar orðabelgur er nýtt, íslenskt barnaleikrit, sem Þjóðleikhúsið frumsýnir á Patreksfirði 2. september og býður í vetur börnum á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni að sjá.

Eitt af markmiðum Þjóðleikhússins er að bjóða börnum að upplifa töfra leikhússins, óháð búsetu og efnahag, og því stendur það fyrir sérstökum boðssýningum á fjölmörgum stöðum á landinu undir yfirskriftinni „Sögustund”. Sögustund er nú sýnd ellefta leikárið í röð. Fyrst um sinn var boðið upp á sýningar í Þjóðleikhúsinu fyrir börn í elstu deildum leikskóla á höfuðborgarsvæðinu, en fyrir þremur árum var ákveðið að stækka verkefnið og ferðast einnig út á land með sýningu fyrir börn í elstu bekkjum leikskóla og yngstu bekkjum grunnskóla.

Að þessu sinni býður Þjóðleikhúsið börnum að sjá splunkunýtt leikrit, Ómar orðabelg, eftir Gunnar Smára Jóhannesson í leikstjórn Björns Inga Hilmarssonar. Í sýningunni sláumst við í för með Ómari orðabelg í leit að uppruna orðanna. Hvaðan kemur orðið fíll? Afhverju segjum við fægiskófla? Er appelsína epli frá Kína? Ómar orðabelgur ferðast um heim orðanna og kynnist allskonar skrýtnum orðum, en eitt orð mun hann kannski aldrei skilja til fulls. Dauðinn. Hvað er að deyja? Og hvað gerist eftir dauðann? Dauðinn er orð sem allir þekkja en veit einhver hvað það þýðir í raun?

Tónlistarmaðurinn Prins Póló semur sérstakt lag fyrir sýninguna. Mathilde Anne Morant sér um leikmynd og búninga, og Juliette Louste um lýsingu. Eftir Gunnar Smára Jóhannesson Leikstjórn Björn Ingi Hilmarsson

Brúarásskóli, Egilsstaðaskóli, Fellaskóli, Hádegishöfði, Skógarland, Tjarnarland


Opin dagskrá á menningarhátíð barna og ungmenna á Fljótsdalshéraði

Smiðja í loftfimleikum og akróbatík hjá fimleikadeild Hattar

11. september kl. 18:00-20:30 í Íþróttamiðstöðinni Egilsstöðum
Fimleikaiðkendum í eldri hópum Fimleikadeildar Hattar býðst ókeypis smiðja í loftfimleikum (silki) og akróbatík. Leiðbeinendur koma úr röðum Sirkus Íslands og hafa áralanga reynslu af sirkuslistum. Í þessari skemmtilegu smiðju læra nemendur nemendur annars vegar grunnatriði í loftfimleikum þar sem hangið er í silki og hins vegar akróbatík, m.a. að búa til alvöru mennskan píramída.

Áhugasömum ungmennum á aldrinum 12-17 ára sem ekki iðka fimleika hjá Hetti en hafa grunn í fimleikum er velkomið að hafa samband við Emelíu, emeliaantonsdottir@gmail.com og fá að mæta í smiðjuna svo lengi sem pláss leyfir.
Leiðbeinendur eru Eyrún Ævarsdóttir, Harpa Lind Ingadóttir.
Ekkert þátttökugjald.

Maximús Músikus

Laugardaginn 14. september í Egilsstaðakirkju kl. 14:30-15:30
Nú verður gaman, því Maxímús Músíkús heldur í tónleikaferð um Austurland og Norðurland! Sinfóníuhljómsveit Austurlands og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands leiða saman hesta sína undir stjórn Hallfríðar Ólafsdóttur, höfundar Maxímúsar. Sögumaður er Almar Blær Sigurjónsson, leikari. Kammersveit flytur fyrsta ævintýrið um Maxímús; Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina.
Ógleymanleg fjölskyldustund með tónelsku músinni sem hefur glatt börn og fjölskyldur um allan heim. Fyrir alla fjölskylduna (2-10 ára)

Aðgangseyrir 2.900 kr. (frítt fyrir 6 ára og yngri). Forsala er 13. september kl. 14:00-18:00 í síma 896 6971.

Hápunktur Bras 2019 - Sirkus og fjör í íþróttahúsinu Egilsstöðum

Laugardaginn 14. september kl. 16:00 – 19:00 - Sirkus og fjör fyrir alla aldurshópa
Bæjarsirkusinn er sirkussýning fyrir káta krakka þar sem töfrar sirkusins vakna til lífsins um land allt. Sýningin er liður í því að gera Sirkus Íslands að sirkus allra landsmanna og leyfa sem flestum að njóta gleðinnar. Óttalaus áhættuleikari, ótrúleg línudansmær, lipurt loftfimleikafólk og ljónatemjari kynna þig fyrir sirkusnum á hátt sem þú hefur aldrei séð áður!

Sýning nemenda úr sirkussmiðjum BRAS. Sýning á afrakstri skapandi vinnu í skólum á Austurlandi. Bras dansinn! Krítargólfið! Upptaktuirnn opnar! Diskótek! Sirkussjoppan opin!

Allir velkomnir og ókeypis fyrir alla aldurshópa!

Þetta vilja börnin sjá

Í Sláturhúsinu, menningarsetri, Egilsstöðum. Sýningin opnar þann 15. september.
Farandsýningin Þetta vilja börnin sjá er sýning á vegum Borgarbókarsafnsins og sýnir hún teikningar úr þeim barnabókum sem gefnar voru út á árinu 2018. Einnig geta gestir flett bókunum sjálfum.
Sýningin er opin öllum en hugsuð fyrir eldri leikskólabörn og yngri grunnskólanemendur

Fornleifasmiðja í Minjasafni Austurlands

18. september, kl. 16:00-18:00 í Minjasafni Austurlands
Þátttakendur fá að leika fornleifafræðinga og grafa eftir „fornleifum“ í mold. Krakkarnir verða hvattir til að vinna eins og fornleifafræðingar, fara varlega, skrá upplýsingar um þá gripi sem þau finna og draga ályktanir, allt eftir aldri og þroska.
BRASað á Minjasafninu er yfirskrift dagskrár sem Minjasafn Austurland stendur fyrir. Dagskráin samanstendur af þremur smiðjum þar sem börn og fjölskyldur þeirra geta átt skemmtilega samverustund að loknum skóladegi en allar smiðjurnar fara fram frá klukkan 16:00 til 18:00.
Ekkert þátttökugjald!

Lesið fyrir háttinn - Náttfatasamkoma í Sláturhúsinu

24. september kl. 19:30-20:30 í Sláturhúsinu menningarsetri, Egilsstöðum
Þriðjudaginn 24. september býður MMF börnum, 3 - 6 ára, í náttfataheimsókn í Sláturhúsið þar sem lesið fyrir úr barnabókum fyrir svefninn. Kertaljós og kósíheit í danssalnum. Forráðamenn og aðrir fullorðnir mæti einnig í náttfötum. Bangsar velkomnir. Lestrarstundin stendur yfir í klukkustund, hefst 19:30 og lýkur 20:30.
Opið öllum, börn komi í fylgd forráðamanns.

Leikjasmiðja í Minjasafni Austurlands

25. september kl. 16:00-18:00 í Minjasafni Austurlands
Hefur þú prófað að reisa horgemling eða sækja smjör í strokkinn? Í leikjasmiðjunni gefst gestum kostur á að prófa margvíslega leiki frá víkingatímum til okkar daga s.s. hnefatafl, myllu, rúnaspádóma, fara í brókina hans Skíða, hoppa í parís og margt fleira.
BRASað á Minjasafninu er yfirskrift dagskrár sem Minjasafn Austurland stendur fyrir. Dagskráin samanstendur af þremur smiðjum þar sem börn og fjölskyldur þeirra geta átt skemmtilega samverustund að loknum skóladegi en allar smiðjurnar fara fram frá klukkan 16:00 til 18:00.
Ekkert þátttökugjald!

Lesið fyrir háttinn - Náttfatasamkoma í Sláturhúsinu

8. október kl. 19:30-20:30 í Sláturhúsinu menningarsetri, Egilsstöðum
Þriðjudaginn 8. október býður MMF börnum, 3 - 6 ára, í náttfataheimsókn í Sláturhúsið þar sem lesið fyrir úr barnabókum fyrir svefninn. Kertaljós og kósíheit í danssalnum. Forráðamenn og aðrir fullorðnir mæti einnig í náttfötum. Bangsar velkomnir. Lestrarstundin stendur yfir í klukkustund, hefst 19:30 og lýkur 20:30. Opið öllum, börn komi í fylgd forráðamanns.

Tálgunarsmiðja í Minjasafni Austurlands

9. október kl. 16:00-18:00 í Minjasafni Austurlands
Gestir fá að prófa listina að tálga í tré undir leiðsögn Bjarka Sigurðssonar.  Hnífar og efni á staðnum. Aldurstakmark 7 ára.

BRASað á Minjasafninu er yfirskrift dagskrár sem Minjasafn Austurland stendur fyrir. Dagskráin samanstendur af þremur smiðjum þar sem börn og fjölskyldur þeirra geta átt skemmtilega samverustund að loknum skóladegi en allar smiðjurnar fara fram frá klukkan 16:00 til 18:00.
Ekkert þátttökugjald!  

 

Á vefsíðu BRAS menningarhátíðar barna og ungmenna á Austurlandi https://www.bras.is/ má finna upplýsingar um flesta þá viðburði sem fram fara í sveitarfélögunum á Austurland