Í þessari vikuna 12.-19. september er endurvinnsluvika á landsvísu þar sem kynnt er mikilvægi endurvinnslu fyrir íslenskt samfélag. Sérstök áhersla er lögð á kynningu fyrir unglinga þar sem kannanir benda til að fólk á aldrinum 16-20 ára standi sig einna verst í flokkun sorps
Í þessari vikuna 12.-19. september er endurvinnsluvika á landsvísu þar sem kynnt er mikilvægi endurvinnslu fyrir íslenskt samfélag. Sérstök áhersla er lögð á kynningu fyrir unglinga þar sem kannanir benda til að fólk á aldrinum 16-20 ára standi sig einna verst í flokkun sorps. Til að mynda segjast ríflega 15% unglinga á aldrinum 16-20 ára aldrei flokka sorp en sambærileg tala fyrir alla aldurshópa yfir 16 ára aldri er 9,2%.
Á meðan á endurvinnsluvikunni stendur verður lögð sérstök áhersla á að kynna úrræði til endurvinnslu í framhaldsskólum landsins. Sérstakt kennsluefni fyrir framhaldsskóla hefur verið unnið í tilefni endurvinnsluvikunnar. Vefsíða Úrvinnslusjóðs hefur verið endurbætt með það að markmiði að upplýsa betur um þau úrræði sem standa til boða í hverjum landshluta fyrir sig. Nokkur fyrirtæki í endurvinnslugeiranum hafa opið hús fyrir framhaldsskóla á síðasta degi vikunnar, föstudaginn 19. september.
Þetta er í fyrsta sinn sem endurvinnsluvika er haldin hér á landi en hún er haldin að evrópskri fyrirmynd. Það er Úrvinnslusjóður sem stendur að átakinu í samvinnu við umhverfisráðuneytið, menntamálaráðuneytið, Gámaþjónustuna, SORPU, Íslenska gámafélagið og Endurvinnsluna. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra setti endurvinnsluvikuna í Menntaskólanum við Hamrahlíð föstudaginn 12. september með viðhöfn.
Full ástæða er til að fræða almenning betur um þau úrræði sem standa til boða. Þótt kannanir sýni að almenningur á Íslandi sé almennt mjög jákvæður í garð endurvinnslu og langflestir flokki sorp að einhverju leyti má alltaf gera betur. Samkvæmt nýrri könnun sem Capacent gerði fyrir Úrvinnslusjóð flokka tæplega 91% Íslendinga sorp til endurvinnslu. Nær 19% segjast gera það alltaf og um 37% oft. Um 35% segjast flokka sorp stundum eða sjaldan. Hlutfall þeirra sem flokka sorp til endurvinnslu hefur hækkað frá síðustu mælingu árið 2006, þegar um 84% sögðust flokka sorp.
Kynntu þér málin á www.urvinnslusjodur.is
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.