Dr. Janus Guðlaugsson með fræðsluerindi í Hlymsdölum

Síðastliðinn föstudag, þann 29. september 2017, kl.15:00 var haldinn opinn fræðslufundur í Hlymsdölum, félagsmiðstöð eldri borgara, á Egilsstöðum. Fyrirlesari var Dr. Janus Guðlaugsson, íþrótta- og heilsufræðingur og lektor við Háskóla Íslands.

Fundurinn var samstarfsverkefni Fljótsdalshéraðs – Heilsueflandi samfélags og Félags eldri borgara á Fljótsdalshéraði og var mikill fengur að fá Janus austur á land. Hann hefur víða um land talað fyrir fjölþættri heilsueflingu eldri aldurshópa og tekið þátt í verkefnum þess efnis. Hann leggur áherslu á að aukin heilsuefling eldra fólks getur m.a. aukið möguleika þess á að starfa lengur á vinnumarkaði, búið lengur í sjálfstæðri búsetu og sinnt athöfnum daglegs lífs.  

Á meðal umfjöllunarefna á fundinum í Hlymsdölum var fjölþætt heilsuefling í sveitarfélögum, leið að farsælum efri árum og hvað þarf til svo koma megi fjölþættri heilsueflingu fyrir hina eldri í framkvæmd í sveitarfélaginu.

Heldri borgarar í sveitarfélaginu voru boðnir sérstaklega velkomnir á fundinn en hann var að sjálfsögðu opinn öllum áhugasömum.