Designs from Nowhere fengu Hönnunarverðlaun 2014

Austurland: Designs from Nowhere hlaut Hönnunarverðlaun Íslands sem afhent voru í gær við hátíðlega athöfn í Kristalsal Þjóðleikhússins. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi verðlaun voru veitt. Dómnefnd valdi fjögur verk úr rúmlega 100 tilnefningum og hlaut "Designs from Nowhere" eða Austurland eftir Pete Collard og Körnu Sigurðardóttur heiðurinn.

Í frétt frá Hönnunarmiðstöðinni segir m.a.: „Designs from Nowhere eða Austurland, er verkefni sem snýst um að kanna möguleika til framleiðslu og atvinnuuppbyggingar á Austurlandi, þar sem notast er við staðbundin hráefni og þekkingu. Karna Sigurðardóttir vöruhönnuður og kvikmyndaleikstjóri og Pete Collard, listrænn stjórnandi hjá Design Museum í London áttu frumkvæði að verkefninu og fengu til liðs við sig hönnuðina Þórunni Árnadóttur, Max Lamb, Juliu Lohmann og Gero Grundmann til að þróa sjálfstæð verkefni í nánu samstarfi við handverksfólk og fyrirtæki á Austfjörðum“ .

Í umsögn dómnefndar segir að verkið sýni á sannfærandi hátt hvernig hlutverk hönnuða felist sífellt meira í því „efla sýn og auka metnað til framleiðslu. [...] Verkefnið, sem var bundið við Austurland, sýnir að með samstilltri sýn og virðingu fyrir menningu á hverjum stað, þar sem handverk, þekking og staðbundinn efniviður er kannaður til hlítar, felur í sér aukin tækifæri til að skapa framúrskarandi verk og hlýtur að vera hvatning öllum til handa“.

Önnur verkefni sem tilnefnd voru til verðlaunanna voru Ljósmyndastúdíó H71a, Magnea AW2014 og Skvís.

Dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands 2014 skipuðu þau Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands, Massimo Santanicchia, lektor í arkitektúr við Listaháskóla Íslands, Örn Smári Gíslason, sjálfstætt starfandi grafískur hönnuður, Laufey Jónsdóttir fatahönnuður og formaður Fatahönnunarfélags Íslands og Tinna Gunnarsdóttir, sjálfstætt starfandi hönnuður og kennari við Listaháskóla Íslands,

Hönnunarverðlaun Íslands 2014 eru peningaverðlaun að upphæð 1.000.000 krónur, veitt af iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Að auki hlýtur verðlaunahafinn grip hannaðan af grafísku hönnuðunum Birni Loka Björnssyni, Elsu Jónsdóttur í samstarfi við vöru- og upplifunarhönnuðinn Kristínu Maríu Sigþórsdóttir.

Myndin sem fylgir fréttinni er af vef Hönnunarmiðstöðvar og er eftir Börk Sigþórsson,